Það er ákaflega mikilsvert að borða hægt og tyggja matinn vel. Líkaminn nærist ekki á því, sem maður gleypir, heldur því, sem meltist og gengur inn í blóðrásina. Og þeim mun vandlegar sem tuggið er, því betur meltist fæðan á leið sinni gegnum meltingarveginn. Það er nauðsynlegt að tyggja allan mat rækilega og blanda hann munnvatni, ekki hvað síst hráfæði og sterkjuauðug matvæli, eins og kornmat og kartöflur.
Því lengur sem tuggið er, þeim mun meira munnvatn blandast saman við fæðuna, auðveldar kyngingu og meltingu. En tygging hefir fleiri kosti. Hún styrkir tennur, hefir góð áhrif á tannhold, stælir andlitsvöðva og kjálka. Munnvatnskirtlarnir framleiða um einn lítra munnvatns á dag, eða meira, sé vel tuggið. Í munnvatni er efni, sem ptyalín heitir og klýfur sterkju, sem er mjög flókið efnasamband, niður í einfaldari sambönd og auðveldar þannig meltingu þeirra, er fer fram niðri í skeifugörn og smáþörmum.
Nokkur einföld ráð:
- Takið litla munnbita.
- Ásetjið yður að borða hægt og tyggja vel.
- Ef tíminn til matar er naumur, þá er betra að borða minna og tyggja vel en gleypa matinn hálftugginn.
- Setjið aldrei upp í ykkur nýjan munnbita, fyrr en hinn síðasti hefir verið tugginn í mauk og honum rennt niður.
- Tyggið maukfæðu ekki síður rækilega en fasta fæðu, svo að hún blandist vel munnvatni.
- Hættið að borða jafnskjótt og lystin segir til.
- Drekkið sem minnst með mat, og aldrei fyrr en hverri munnfylli hefir verið kyngt.
- Borðið sem mest af hrámeti.
- Ofnotið ekki vélar, sem smækka fæðuna eða vinna úr henni drykki. Notkun þeirra kemur í veg fyrir, að fæðan sé tuggin.
- Gleymið ekki, að líkaminn nærist ekki á því, sem við gleypum, heldur næringu þeirri, sem kemst inn í blóðrásina.
(Þýtt úr „Vie et Santé“).
Charles Gerber
Heilsuvernd 2. tbl. 1963, bls. 34-35
