Á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði er heimagert súrkál á borðum allt árið um kring. Aðferðin við að sýra grænmeti byrjar á mjólkursýrugerjun sem er geymsluaðferð sem eykur næringargildið og gerir grænmetið auðmeltanlegra. Bakteríurnar sem myndast framleiða vítamín og ensím sem bæta meltinguna og efla þarmaflóruna. Hér er hægt að kynna sér mikilvægi öflugrar þarmaflóru.
Á yfirborði kálsins eru góðar bakteríur, ein af þeim heitir lactobacillus sem er sama bakterían og finnst í jógúrt og mörgum öðrum gerjuðum vörum. Þegar við blöndum saltlausn saman við kálið byrjar bakterían að brjóta niður sykrur í kálinu og myndar mjólkursýrur sem er náttúruleg rotvörn og hamlar vöxt skaðlegra baktería.
Hreinlæti er mjög áríðandi við vinnslu súrkáls. Því ber að nota hrein áhöld og vel þvegnar hendur þegar hafist er við vinnslu. Krukkur og önnur ílát á að hreinsa vel og passa að engar sápuagnir séu í krukkum sem notaðar eru til geymslu á kálinu. Gott er að þrífa þær vel og hella svo sjóðandi vatni í ílátin og láta liggja aðeins til þess að sótthreinsa.
Súrkál með hvítkáli:
- 1 hvítkálhaus
- 1½ msk gott sjávarsalt
- 1 msk kúmen
Aðferð:
- Takið ystu blöðin af og hendið. Skerið hausinn í tvennt og kjarnhreinsið.
- Skerið eða rífið kálið fínt niður og setjið í skál. Blandið salti og kúmeni saman við og nuddið kálið með höndunum í nokkrar mínútur. Gott að pressa þetta vel.
- Þegar kálið er orðið vel rakt er það sett í krukkur og pressað aðeins en athugið að hafa gott bil frá kálinu og upp í topp á krukkunni, sirka 1-2 cm. Einnig þarf að passa að vökvinn nái yfir kálið og ef það vantar meiri vökva þá má blanda við kálið smá köldu vatni og loka krukkunum.
- Góð aðferð við að loka krukkunum er að setja smá vatn í poka, binda fyrir og leggja ofan í krukkurnar til þess að mynda farg.
Blóðugt súrkál:
- 1 rauðkálshaus
- 1 rauðrófa
- Þumall af engifer
- 2 stk stjörnuanís
- 200 ml vatn
- 1½ msk sjávarsalt
Aðferð:
- Setjið vatnið í pott með saltinu og stjörnuanísnum. Hitið að suðu og látið kólna í kæli.
- Takið ystu blöðin af og hendið. Skerið rauðrófuhausinn í tvennt og kjarnhreinsið. Skerið eða rífið kálið fínt niður og setjið í skál.
- Afhýðið rauðrófuna og rífið niður með grófu rifjárni. Rífið engiferið niður með fínu rifjárni.
- Blandið öllu saman í skál og nuddið vel og lengi. Troðið svo vel í krukkur. Setjið plastpokafarg yfir eins og útskýrt var í hér að ofan og lokið.
- Geymið við stofuhita í 8-10 daga og lengur ef vilji er fyrir því. Geymið í ísskáp.
Kimchi:
- 1 kg kínakál, gróft skorið
- 1 msk sjávarsalt
- 1 msk rifið engifer
- 1 msk gróft skorinn hvítlaukur
- 2 msk siriacha chilisósa
Aðferð:
- Kálið er skorið niður, salti stráð og nuddað. Látið liggja í 2-3 tíma eða jafnvel yfir nótt.
- Bætið við chili, hvítlauk og engifer og nuddið vel saman.
- Látið standa í krukku við stofuhita í minnst 3 daga en lengur ef það á að vera bragðsterkara. Kálinu er svo komið fyrir í krukkum með þéttiloki.
- Passið að fylla ekki krukkuna því töluverður vökvi á eftir að losna úr kálinu.
Verði ykkur að góðu!
