Solla á GLÓ deildi þessari gómsætu og glæsilegu uppskrift með okkur hjá Náttúrulækningafélaginu. Nota má kasjúhnetur, furuhnetur eða möndlur í hrísgrjónin.
Blómkálshrísgrjón:
- 1 meðalstórt blómkálshöfuð, blómin skorin í litla bita
- 1 ½ dl hnetur, lagðar í bleyti í 2 klst, smátt saxaðar
- 1-2 msk næringarger
- 1 msk laukduft
- 1 tsk salt
- Svartur pipar
Aðferð:
- Skerið blómkálsblómin af stönglinum. Skerið í litla bita og setjið í matvinnsluvélina í örfáar sekúndur eða þar til kálið minnir á lítil korn eða hrísgrjón. Passið að hafa það þó ekki lengur en í svona 10 sekúndur, annars verður það of klesst og ramma bragðið dregst út úr blómkálinu.
- Blandið allri uppskriftinni saman í stóra skál.
Avókadó sushimaki:
- 4 blöð noriþari
- 2 blöð blómkálshrísgrjón
- 2-3 avókadó, afhýtt og skorið í þunnar sneiðar
- 4 msk sesamfræ sem búið er að blanda saman við 1 tsk af wasabidufti
Aðferð:
- Leggið blað af nori þara á bambusmottu og látið glansandi hliðina snúa niður. Setjið lag af blómkálshrísgrjónum og þjappið þeim niður. Setjið síðan avocadosneiðar og 1 msk sesamfræ í línu eftir miðju blaðinu. Rúllið sushimaki rúllunni upp. Gott að vefja frekar þétt svo hún haldi sér betur. Lokið rúllunni með því að væta endann með smá vatni svo rúllan límist betur saman.
- Skerið í 8 bita. Notið beittan hníf eða hníf með tönnum. Klárið að rúlla öllum rúllunum.
- Berið fram með tamari sem búið er að hræra smá wasabi (japönsk piparrót) eða maukaðri ferskri engiferrót.
Verði ykkur að góðu!
