Grískt moussaka var upprunalega gerð úr kjöthakki og kartöflum með „bechamel“ mjólkursósu. Hér er þessu snúið við og rétturinn gerður úr linsubaunum í stað kjöts og sætar kartöflur í stað venjulegra. Þá er jurtamjólkursósa í stað hefðbundinnar mjólkursósu. Gott er að bera réttinn fram með tómötum, ólífum, fersku salati og tzatziki sósu. Hún er gerð úr grískri jógúrt eða jurtajógúrt, ólífuolíu, sítrónu, agúrku, hvítlauk, myntu og dilli. Þessi réttur er ríkur af trefjum, próteini, A-vítamíni, C-vítamíni, B6-vítamíni og kalíum.
Eggaldin og sætar kartöflur:
- 2 eggaldin í þunnum sneiðum
- 2 msk ólífuolía
- 2 sætar kartöflur
Linsubaunir:
- 1 laukur, smátt skorinn
- 2 hvítlauksrif
- 1 tsk kanill
- 2 tsk óreganó
- 2 msk tómatpúrra
- 250 gr linsubaunir
- 600 ml vatn
- 400 gr tómatar í dós
- 1 tsk salt
Jurtamjólkursósa:
- 2 msk ólífuolía
- 4 msk hveiti eða kjúklingabaunahveiti
- 400 ml mjólk eða jurtamjólk
- 1/4 tsk múskat
- Salt og pipar
Aðferð:
- Ofninn hitaður í 200 gráður. Eggaldin skorið í sneiðar, þær penslaðar með olíu og bakaðar fallega brúnar í um 10 mínútur.
- Saxaður laukur og hvítlaukur steikt í ólífuolíu í potti og kryddað með óreganó og kanil. Bætið tómatpúrru við og steikið í stutta stund. Þá er linsubaunum og vatni bætt við og látið malla í 30-40 mínútur.
- Hitið olíu í potti og hrærið hveitið saman við þar til þetta brúnast aðeins. Bætið við helmingnum af mjólkinni og hrærið vel. Bætið afganginum af mjólkinni við smám saman og að lokum múskati, salti og pipar.
- Raðið þessu í smurt eldfast mót. Fyrst þriðjung af eggaldin, þá helminginn af kartöflunum og svo helminginn af linsubaunasósu. Endurtakið þessa röðun en endið á einu lagi af eggaldin. Hellið jurtamjólkinni yfir allt saman og bakið við 180 gráður í 35-40 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
- Látið réttinn standa í 30 mínútur og sáldrið ólífuolíu yfir áður en rétturinn er borinn fram.
Mynd: Halldór Steinsson

