Litríkt og næringarríkt salat úr smiðju Halldórs Steinsson á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Gott eitt og sér eða meðlæti með nánast hverju sem er. Granatepli eru trefjarík með miklu af C og K vítamíni.
Þú þarft:
- 1/2 rauðkál skorið í litla bita
- 1 agúrka skorin í litla teninga
- 2 tómatar skornir í litla bita
- 100 gr söxuð steinselja
- 30 g saxað dill
- 100 g granateplakjarnar
- safi úr einni sítrónu
- 4 msk ólífuolía
- Salt og pipar
Aðferð:
- Blandið öllu saman og berið fram.
