Kínóaborgarinn er einn vinsælasti rétturinn á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Kínóa er einstaklega næringarríkt og eitt af fáum plöntutegundum sem inniheldur allar níu nauðsynlegu amínósýrurnar, sem eru byggingareiningar próteina. Auk þess er kínóa mjög ríkt af trefjum, B-vítamínum, járni, magnesíum og sinki. Kínóa er glútenlaust og hentar því vel sem valkostur í kornvörum fyrir þá sem eru með glútenóþol.
Þú þarft:
- 400 g rautt kínóa
- 1 saxaður laukur
- 2 tsk fennelduft
- 1 tsk chiliduft
- 1 dós svartar baunir
- 150 g gulrót í litlum teningum
- 70 g brauðrasp
- 100 g ristaðar og muldar valhnetur
- Safi úr 1 sítrónu
- 1 msk söxuð steinselja
- 1 msk sriacha sósa eða tómatpúrra
- 2 msk kartöflumjöl
- Salt og pipar
Aðferð:
- Sjóðið kínóa samkvæmt leiðbeiningum, sigtið og kælið.
- Steikið laukinn fallega brúnan á pönnu og kryddið svo með fennel og chilidufti. Bætið baunum við, steikið í 5-10 mínútur og hrærið vel á meðan. Stappið svo allt saman með kartöflupressu og blandið við kínóa.
- Gulræturnar eru steiktar á pönnu í olíu með salti og pipar. Hrærið saman við deigið. Bætið við brauðraspi, valhnetum, sítrónusafa, steinselju og chilisósu og smakkið til með salti og pipar. Kartöflumjölinu blandað út í 2 matskeiðar af vatni og hnoðað saman við deigið.
- Mótið 12-15 borgara og bakið í ofni við 220 gráður eða steikið á pönnu í 3-4 mínútur á hvorri hlið.
Mynd: Halldór Steinsson

