Það besta við heimagerða möndlumjólk er að þú veist nákvæmlega hvað er í henni, hún inniheldur engin óþarfa aukaefni og þú getur bragðbætt hana eins og þú vilt. Þessi er með kanil, vanillu og döðlum. Hún er æðisleg ein og sér, útá grautinn, í smoothie-inn, í „overnight oats“ eða út í te-ið.
Möndlurnar eru lagðar í bleyti yfir nótt og við það „vakna þær“ eða virkjast og næringarefnin verða aðgengilegri og auðveldari í upptöku. Hægt er að fjarlægja hýðið af möndlunum eftir að þær hafa legið í bleyti en það er ekki nauðsynlegt.
Í sigtipokanum verður eftir möndluhrat sem hægt er að nota í hrákex, bakstur, hollar nammikúlur eða sem grunn í dressingar. Um að gera að leika sér með það.
Þú þarft:
- 2 dl lífrænar möndlur
- 10 dl vatn
- 2-3 ferskar döðlur (fer eftir hversu sæta þú vilt hafa mjólkina)
- 1 tsk ceylon kanil
- 1/2 tsk lífrænt vanilluduft
- hnífsoddur salt
Aðferð:
- Byrjið á að leggja möndlur í bleyti yfir nótt (eða 12 klst).
- Hellið vatninu af og skolið þær. Hér er hægt að afhýða möndlurnar með því að klemma möndluna milli fingranna og hýðið ætti að losna nokkuð auðveldlega.
- Setjið 2 dl af blautlögðum möndlum í blandara ásamt vatni, steinhreinsuðum ferskum döðlum, vanillu og kanil og blandið vel.
- Takið fram skál sem rúmar alla mjólkina og komið sigtipoka fyrir yfir skálinni. Hellið mjólkinni í gegnum sigtipokann og notið hreinar hendur til að kreista allan vökvann úr pokanum í skálina.
- Geymið mjólkina í loftþéttu íláti og geymið í ísskáp. Hún geymist í 3 daga í ísskáp.
