Grillaður silungur með hnetum og camenbert úr smiðju Geis Gunnars Markússonar næringarfræðings á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Tveggja til þriggja punda silungur á mann er hæfilegur skammtur.
Fiskurinn:
- Heill silungur
- Púrrulaukur
- Camenbert
- Salthnetur
- Hunang
- Hvítlaukspipar
- Salt
Aðferð:
- Hreinsið og þerrið silunginn.
- Saxið salthnetur, sneiðið púrrulauk og bitið niður ostinn.
- Byrjað er á að krydda silunginn að innan og utan með hvítlaukspipar og smávegis af hunangi. Fyllið síðan silunginn með púrrulauk, camembert osti og dálítið af hnetum. Stráið síðan salthnetum yfir fiskinn og kryddið með hvítlaukspipar og salti. Pakkið inn í álpappír. Grillað í um 12 mínútur á hvorri hlið.
- Borið fram með bakaðri kartöflu, salati og jafnvel heitu brauði.
Verði ykkur að góðu!
