Undanfarin ár hafa stjórnendur Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins sett fram framtíðarsýn og yfirlit yfir þau verkefni sem áhersla er lögð á. Áhersla er ætíð lögð á forgangsröðun mikilvægustu þátta til að efla gæði þjónustunnar og mælanleika.
Heilsustofnun á að vera eftirsóttur vinnustaður. Það á að efla og viðhalda faglegri þekkingu. Skipulögð fræðsla og þjálfun fyrir starfsfólkið á vinnutíma og miðlun þekkingar innanhúss milli starfsfólks. Álag og mönnun á að fara saman og niðurstaða starfsmannasamtala sé nýtt til endurbóta.
Gæðavísar eiga áfram að vera í forgangi og árangursmælingar auknar. Lögð er áhersla á endurskoðun og innleiðingu nýrra árangursmælinga til að tryggja gæði þjónustunnar. Samstarf við háskólasamfélagið verður aukið. Komið á starfsnámi heilbrigðisstétta og kynning á starfsemi Heilsustofnunar aukin. Einnig á að auka samstarf við háskóla og aðrar heilbrigðisstofnanir um rannsóknir.
Vinnuafköst deilda verða skoðuð í heild og viðmið sett um álag. Þjónustukönnunum dvalargesta verði komið í mælanlegt ferli og innlagnaferli og biðlistar rýndir reglulega.
Sjálfbærnistefnan verður innleidd og áhersla lögð á lífræna framleiðslu og að kaupa lífrænar afurðir. Stefnt er að því að viðhalda gæða- og kostnaðarvitund í innkaupum og að mikilvægi endurvinnslu verði gerð sýnilegri.
Mynd: Pálmi Jónasson

