Engin tegund af barnamauki í svokölluðum skvísum uppfyllir næringarviðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar. Aðeins lítill hluti barnamatar sem fæst í íslenskum verslunum stenst þessi næringarviðmið. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Birnu Þórisdóttur sem er dósent við Matvæla- og næringarfræðideild við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands. Í frétt Rúv kemur fram að dæmi séu um að leikskólabörn kunni ekki að borða með skeið því þau séu vön að sjúga matinn úr skvísum.
Í rannsókninni kemur fram að um 400 tegundir af tilbúnum mat fáist í matvöruverslunum á Íslandi. Þar af eru rúmlega 120 tegundir af mauki í skvísum og yfir 110 tegundir af svokölluðum fingramat eða vörum sem börn geta tínt upp í sig sjálf. „Þetta eru ávaxtagúmmí í litlum bitum, rúllum eða stöngum, snakk, nokkurs konar frauð ásamt kexlíkum vörum. Aðrar algengar tegundir eru mauk í krukkum, grautarmjöl og mjólkurblöndur,“ útskýrir Birna á vef HÍ.
Fyrstu niðurstöður benda til þess að engin tegund af skvísum eða fingramat uppfylli viðmið um næringarsamsetningu og aðeins fjórðungur mauks í krukkum og þriðjungur grautarmjöls standist þessi viðmið. „Á mörgum umbúðum stendur að barnamaturinn innihaldi engan viðbættan sykur og það er í sjálfu sér rétt. En við nánari skoðun innihalda þær þó oft mikið af fríum sykrum. Fríar sykrur myndast til dæmis þegar ávextir eru unnir í fíngert mauk. Þá losna sykrur úr frumuveggjum ávaxtanna og kallast þá „fríar sykrur“, en þær frásogast mun hraðar en ávaxtasykur í heilum ávöxtum og hafa önnur áhrif á líkamann, svipuð áhrif og viðbættur sykur. Orkuþéttni vísar til þess hversu mikil orka er í tilteknu magni af mat. Ef barnamatur er ekki nægilega orkuþéttur eru líkur á að lítill magi ungbarnsins fyllist áður en barnið hefur fengið þá orku og næringarefni sem það þarfnast.“
Birna segir jafnframt að þessar niðurstöður bendi til þess að engin þessara vara uppfylli viðmið um markaðssetningu. „Sem dæmi er nafn þessara matvara stundum órætt eða ekki augljóst hvert aðalinnihaldsefnið er. Einnig geta merkingar eða upplýsingar á umbúðunum gefið til kynna að vörurnar hafi eiginleika sem rannsóknir hafa ekki rennt stoðum undir og stundum eru upplýsingarnar hreinlega misvísandi, til dæmis þegar segir að varan innihaldi engan viðbættan sykur þegar hún inniheldur mikið af fríum sykrum.“
