Þessi útgáfa af fiski og frönskum er létt og ljúffeng enda deigið gert úr eggi og engin djúpsteiking. Hér voru notaðir þorskhnakkar en nota má hvaða fisk sem er. Að þessu sinni voru kartöflurnar nýupptekið smælki og grænar baunir og sítróna á kantinum eins og Bretarnir gera oft. Yfirleitt nota ég bökunarkartöflur sem ég sker niður eins og franskar kartöflur. Ég notaði japanskt majónes sem sósu að þessu sinni.
Þú þarft:
- 600 g kartöflur
- 600 g fiskur
- 2 egg
- 1 sítróna, börkurinn
- Ferskt krydd
- 1 msk sinnep
- 300 g grænar baunir
- 1 sítróna í bátum
Aðferð:
- Sjóðið kartöflurnar í nokkrar mínútur. Steikið svo á pönnu með smjöri og salti eða steikið létt á pönnu.
- Þeytið eggjahvíturnar. Blandið saman eggjarauðum, sinnepi, sítrónuberki, fersku kryddi af einhverju tagi og salti og pipar. Hrærið þeyttu eggjahvítunni varlega saman.
- Setjið fiskinn í eggjablönduna og bakið í 220 gráða heitum ofni í um 15 mínútur eða þar til fallega brúnt.
- Hitið frosnar grænar baunir í potti og berið fiskinn fram með kartöflum, baunum og sítrónubátum.
Myndir: Pálmi Jónasson.




