Blómkálsbollur með hnetusósu úr smiðu Halldórs Steinsson matreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.
Blómkálsklattar:
- 500gr soðið blómkál
- 200 g fínt skorinn blaðlaukur
- 100 g smátt skorið sellerí
- 100 g soðin hrísgrjón
- 2 msk saxað kóríander
- 2 tsk karrý
- Safi úr ½ sítrónu
- 1 egg
- 4 msk spelthveiti eða bókhveiti ef gera á glúteinlausar bollur
- 3 hvítlauksrif pressuð
- Salt/pipar
Aðferð:
- Byrja á því að saxa blómkálið fínt og blanda svo öllu saman. Ef blandan er of blautt þá er bætt við smá meira spelt.
- Bollurnar eru svo mótaðar og steiktar á pönnu í kókosolíu eða annarri olíu eftir smekk.
Hnetusósa:
- 150 gr hnetusmjör, whole earth crunchy
- 2,5 msk sojasósa
- safi úr einu lime
- 1 msk rifinn engifer
- 1 msk hunang
- 1 hvítlauksrif, rifið
- 1 rautt chilli, saxað smátt
- 3 dl kókosmjólk
Aðferð:
- Allt sett í pott og hitað varlega að suðu.
