Tabbouleh er miðausturlenskt salat sem hentar með öllum mat. Búlgur er úr steyttu, þurrkuðu og forsoðnu durum-hveiti. Það er töluvert næringarríkara en kúskús þar sem það er mun minna unnið og því hafa næringarefnin fengið að halda sér.
Tabbouleh:
- 50 g búlgúr
- 50 g fersk steinselja söxuð
- 50 g fersk mynta söxuð
- 200 g tómatar skornir í litla teninga
- 3 vorlaukar skornir fínt
- safi úr einni sítrónu
- 3 msk ólífuolía
Aðferð:
- Byrjum á því að skola vel búlgúrkornið með því að skella því í sigti og láta kalt vatn renna á það. Því er svo komið fyrir í skál ásamt 200 ml af sjóðandi vatni, skálinni lokað með plastfilmu og látið standa í 30 mínútur.
- Þegar búlgúrkornið er tilbúið er öllu blandað saman.
Verði ykkur að góðu!
