Morgunmatur er ein af mikilvægustu máltíðum dagsins. Hér er uppskrift af bygggraut úr smiðju Móður Jarðar í Vallanesi. Uppskriftin hér er aðeins breytt að smekk undirritaðs. Endilega skiptið út ávöxtum, berjum eða öðru sem þið teljið henta. Hægt er að geyma grautinn í ísskáp í 5-7 daga.
Þú þarft:
- 5 dl bankabygg
- 2 lítrar vatn
- 2 epli skorin í litla teninga (eða perur)
- 1-2 dl rúsínur (eða sveskjur)
- 1 msk kanill
- 2 tsk salt
- 1 dl möndlur með hýði
- 1 dl sólblómafræ (eða graskersfræ)
- 1 dl kókosflögur
Aðferð:
- Allt sett í pott og látið sjóða í 15 mínútur. Látið standa í 8-12 tíma eða yfir nótt.
- Grauturinn er góður kaldur með mjólk eða rjóma en mörgum finnst betra að hita hann upp.
