Öll vitum við að við eigum að borða vel af ávöxtum og grænmeti daglega, helst fimm skammta samtals af ávöxtum og grænmeti (2 af ávöxtum og 3 af grænmeti er flott markmið) samkvæmt ráðleggingum Landlæknis.
En hvað eru næringarríkustu ávextirnir og grænmetið? Er alveg sama hvað maður velur að setja sér til munns?
CSPI (Center For Science in Public Interest – Miðstöð vísinda í almannaþágu) stofnunin í Bandaríkjunum hefur útbúið lista yfir grænmeti og ávexti eftir næringarskori þeirra.
Ávextirnir og grænmetið er metið útfrá ákveðnum næringarefnum þeirra þ.e.a.s magni af C-vítamíni, fólati, kalíum, kalki, járni og trefjum og karótínóíða. Því hærra skor þeim mun meira er af þessum næringarefnum í vörunni.
Vert er að taka fram að þessi töflur eru ekkert algildar og t.d eru epli frábær valkostur í hollu snakki sem er vítamín- og næringaríkt. Ef að þú ert ekki byrjaður/uð á því að neyta 5 skammta af ávöxtum og grænmeti á dag, byrjaðu á því og farðu svo að spá í því hvaða tegund er hvað næringarríkust.
Ef við viljum “náttúruleg” fæðubótarefni sem virka vel fyrir líkamann ættum við að borða ríflega af þeim vörum sem eru ofarlega í töflunum hér að neðan.
Ávöxtur | Næringarskor |
1 stórt stykki af vatnsmelónu (154 g kjöt) | 310 |
½ greip | 263 |
½ papaya | 223 |
¼ kantalópa | 200 |
1 meðalstór appelsína | 186 |
8 stór jarðarber | 173 |
1 kiwi | 115 |
125 g hindber | 106 |
1 mandarína | 105 |
½ mangó | 94 |
⅛ af hunangsmelónu | 85 |
2 ferskar apríkósur | 78 |
1 meðalstór banani | 54 |
1 stór ferskja | 47 |
1 meðalstór pera | 44 |
1 epli með hýði | 43 |
35 gr rúsínur | 24 |
2 helmingar af niðursoðnum perum | 20 |
½ glas af eplasafa, ósykruðum | 14 |
Grænmeti | Næringarskor |
30g spínat | 287 |
½ rauð paprika | 261 |
1 meðalstór gulrót | 204 |
50 g kínakál | 174 |
45 g brokkolí | 160 |
45 g hvítkál | 135 |
½ græn paprika | 109 |
½ avocado | 82 |
½ tómatur | 78 |
80 g maískorn | 67 |
125 g grænar baunir | 65 |
50 g blómkál | 62 |
72 g iceberg salat | 45 |
70 g rófur | 33 |
83g sveppir, eldaðir | 33 |
1/6 af stórri agúrka | 14 |
16 g alfa alfa spírur | 7 |
Copyright CSPI 2002. Tekið úr bókinni Nancy Clark’s Sports Nutrition Guidebook. 4th edition.
Allt grænmetið og ávextirnir er ferskir, nema að annað sé tekið fram.