Austur-afrísk grænmetissúpa sem er einstaklega holl því hún inniheldur tómata, engifer, sætar kartöflur, hnetur og margt fleira hollt og gott. Það þægilega við súpuna er að maður getur skorið grænmetið mjög gróft því það fer allt saman í matvinnsluvél. Súpan er því sérlega fljótleg í undirbúningi. Súpan er mjólkurlaus, glúteinlaus og hentar jurtaætum eða þeim sem eru vegan. Berið fram með snittubrauði eða öðru góðu brauði.
Súpan:
- 1 msk kókosolía
- 1 laukur, saxaður gróft
- 2 hvítlauksgeirar, saxaðir gróft
- 2 g ferskt engifer, saxað smátt
- 0,5 msk cumin
- 1 msk kóríander
- 1 tsk kanill
- 1 tsk negull
- 250 g tómatar, saxaðir gróft
- 450 g sætar kartöflur, saxaðar gróft
- 1 stór gulrót, söxuð gróft
- 750 ml vatn
- 1 tsk sjávarsalt
- 1 gerlaus grænmetisteningur
- 20 g cashew hnetur, þurrristaðar á pönnu
- 1 tsk cayenne pipar
- 1 msk hnetusmjör (hreint og án viðbætts sykurs)
- Nokkur kóríanderlauf
Aðferð:
- Þurrristið hneturnar á pönnu.
- Afhýðið laukinn, hvítlaukinn, engiferið, gulræturnar og sætu kartöflurnar og saxið allt gróft. Saxið tómatana einnig gróft.
- Hitið kókosolíuna í stórum potti. Hitið laukinn í um 7 mínútur eða þangað til hann er orðinn mjúkur. Ef vantar meiri vökva á pönnuna, notið þá vatn.
- Bætið hvítlauk, engiferi, cumin, kóríander, kanil og negul saman við. Bætið tómötunum, sætu kartöflunum og gulrótinni saman við. Hitið í um 5 mínútur. Hellið 750 ml af vatni út í pottinn ásamt grænmetisteningnum. Látið suðuna koma upp og leyfið þessu að malla í um 30 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt. Takið súpuna af hellunni og látið kólna í nokkrar mínútur.
- Hellið súpunni í matvinnsluvél ásamt þurrristuðum hnetum og hnetusmjöri og blandið þangað til allt er orðið vel maukað. Áferðin fer eftir smekk ykkar þ.e. ef þið viljið hafa grænmetisbita í súpunni getið þið blandað hana skemur en maukið lengur fyrir mýkri áferð. Einnig má nota töfrasprota eða blandara.
- Hellið súpunni nú í pottinn og hitið vel. Saltið og piprið eftir smekk. Dreifið nokkrum kóríanderlaufum yfir súpuna áður en hún er borin fram.
Verði ykkur að góðu!
