Byggsalat úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Uppskriftin passar fyrir tvo.
Byggsalat:
- 2 litlar rauðrófur, bakaðar
- 300 g soðið bygg
- 1 tsk túrmerik
- 1 stór lárpera
- ½ granatepli
- Handfylli kóríander eða steinselja
- 3 handfylli af söxuðu grænkáli
- Rifin börkur og safi úr ½ appelsínu og sítrónu
- ½ dl ólífuolía eða repjuolía
- Þumall af piparrót
- Salt og pipar
Aðferð:
- Rauðrófurnar eru bakaðar heilar í ofni á 160°C í um 40 mínútur. Kældar, afhýddar og skornar í teninga.
- Byggið er soðið í vatni með smá grænmetiskrafti og túrmerik. Lárperan er skorin í teninga.
- Öllu er blandað saman og sett í skál. Að lokum er piparrót rifin yfir og skreytt með granatkjörnunum.
Verði ykkur að góðu!
