Möndlumjólk er frábær valkostur fyrir þá sem eru vegan, eru með mjólkurofnæmi eða laktósaóþol. Hún er líka meinholl. Uppskriftin birtist í bókinni „Uppskriftir Heilsustofnunar“.
Þú þarft:
- 350 g möndlur
- 1 lítri vatn
- 2 klípur sjávarsalt
- 4 döðlur eða 2 tsk gott hunang
Aðferð:
- Leggið möndlurnar í bleyti í skál svo fljóti vel yfir, helst yfir nótt. Skolið vel með köldu vatni og setjið í blandarar með afganginum af innihaldsefnunum, auk líktra af köldu vatni og blandið vel. Sigtið í gegnum spírupoka eða fínt sigti.
- Setjið mjólkina á flöskur. Getur geymst í kæli í allt að þrjá daga.
