Það er mun meira af trefjum, vítamínum og steinefnum í grófum kornvörum en þeim sem meira eru möluð. Frækubburinn er uppfullur af næringarríkum fræjum og möndlum. Uppskriftin passar í tvo hleifa.
Þú þarft:
- 300 g sólblómafræ
- 180 g hörfræ
- 130 g skornar hesilhnetur eða möndlur
- 300 g haframjöl
- 4 msk chiafræ
- 6 msk psyllium husk duft
- 2 tsk sjávarsalt
- 2 msk síróp
- 6 msk brædd kókosolía
- 700 ml vatn
Aðferð
- Blandið öllum þurrefnum saman í skál. Hrærið saman sýrópíð, kókosolíuna og vatnið. Bætið þessu því næst við þurrefnin og blandið vel saman.
- Deigið á að vera þykkt en þó ekki of þykkt. Ef deigið er of þykkt til að hræra það bætið þá 1-2 msk af vatni við þar til deigið verður hæfilega þykkt.
- Degið er sett í tvö form (sílikonform eða olíuborið form). Gott er að slétta úr yfirborðinu og látið deigið standa í 2 klst áður en það er bakað.
- Brauðið er bakað við 175 gráður í 20 mínutúr. Takið brauðið því næst úr forminu og snúið því á hvolf á plötu og bakið í 30-40 mínútur.
- Brauðið er tilbúið þegar það virðist holt að innan þegar slegið er ofan á það.
- Brauðið geymist í lokuðum umbúðum í um 5 daga og einnig má frysta það.
