Svartbaunaquesadilla með lárperusalsa úr smiðju Halldórs Steinsson matreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.
Quesadilla:
- 1 dós svartar baunir
- 1 krukka sólþurrkaðir tómatar
- 1 dós maukaðir tómatar
- 1 laukur smátt saxaður
- 1 græn paprika smátt skorin
- 4 hvítlauksrif smátt söxuð
- ½ tsk karrý
- ½ tsk cumin
- handfylli saxaður kóríander
- ½ tsk salt
- 1 tsk pipar
- rifinn ostur
- heilhveiti tortillur
Aðferð:
- Steikjið lauk, papriku, hvítlauk, karrý og cumin í potti. Maukið sólþurrkuðu tómatana í matvinnsluvél og bætið út í pottinn ásamt tómatmauki og svörtum baunum. Saltið og piprið. Látið þetta malla við vægan hita í um 10 mínútur og bætið ferskum kóríander við í lokin. Takið af hitanum og kælið.
- Þegar blandan er orðin köld er hún smurð á tortillurnar, rifnum osti dreift yfir og lokað með annarri tortillu.
- Olía hituð á pönnu og kakan steikt þar til hún er fallega brún á báðum hliðum. Skerið hana til helminga og berið fram með lárperusalsa og sýrðum rjóma.
Lárperusalsa:
- 2 lárperur
- 1 rauðlaukur
- 3 hvítlauksrif
- safi úr ½ sítrónu
- 1 lúka ferskur kóríander
- smá salt
Aðferð:
- Allt skorið smátt og blandað saman.
Verði ykkur að góðu!
