„Ég vil beina sjónum að kostnaði þess að gera ekki neitt. Endurhæfing skilar fólki hraðar aftur til vinnu, dregur úr veikindakostnaði og léttir á bráðaþjónustu. Þegar ríkið heldur endurhæfingu í óvissu og fjármagnar ekki endurhæfingarstarf er það ekki sparnaður heldur seinkun á bata og hærri heildarkostnaður síðar. Þetta sagði Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og 2. þingmaður Suðurkjördæmis í seinni ræðu sinni í fyrirspurnartíma á Alþingi 22. september.
„Þetta er einföld hagkvæmnisregla. Fjárfesting í endurhæfingu sparar síðar. Hér rekst faglegt mat á pólitíska forgangsröðun. Sjúkratryggingar hafa bent á að greiðslur standi ekki undir raunkostnaði en samt er haldið í ástand þar sem þjónustan hangir á bláþræði. Þess vegna spyr ég ráðherra aftur: Ætlar ráðherra að axla forystu og snúa þessum ráðahag við með skýrri ákvörðun um vernd endurhæfingar og stuðnings, þar á meðal Ljóssins og Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði? Eða er afstaða ríkisstjórnarinnar sú að láta sjúklinga, fjölskyldur og vinnumarkaðinn greiða reikninginn fyrir forgangsröðun sem einfaldlega stenst enga skoðun?“
Í fyrri ræðu sinni sagði Guðrún að endurhæfing væri ekki jaðarmál í heilbrigðiskerfinu heldur lykilþáttur þess að sjúklingar nái heilsu, komist aftur til vinnu og losni af biðlistum. „Því vek ég athygli á þjónustusamningi um hið mikilvæga endurhæfingarstarf Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði en enginn samningur er í gildi og viðræður hafa staðið yfir í langan tíma án niðurstöðu. Á sama tíma liggur fyrir hjá Sjúkratryggingum Íslands að greiðslur hafa ekki staðið undir raunkostnaði og talið vanta verulega fjármuni til að greiða fyrir þjónustuna sem veitt er.“
Alma Möller heilbrigðisráðherra tók undir mikilvægi endurhæfingar sem skilaði sér margfalt til samfélagsins. „Það er hins vegar þannig að það hefur ekki verið raunvöxtur í undanförnum fjárlögum og þessi þjónusta hefur sætt aðhaldi. Ég hef talað fyrir því að svo megi hlutirnir ekki vera og held því áfram. En það sem ég tók mjög fljótt eftir þegar ég kom inn í heilbrigðisráðuneytið í upphafi ársins er að það er ekki nægilega vel skilgreint hvað heilbrigðistengd endurhæfing er. Þar setti ég þegar í stað af stað vinnu um að skilgreina það og svokölluð hvítbókarvinna er í gangi og hún verður kynnt á heilbrigðisþingi sem helgað verður endurhæfingu. Það er alveg rétt að það er gagnrýni á hvernig fjármunum hefur verið útdeilt til mismunandi stofnana og Náttúrulækningafélagið hefur gagnrýnt það. Þetta er ekkert nýtt, þetta er búið að vera til margra ára en auðvitað þarf að laga það.“