Náttúrulækningafélag Íslands er nú að selja sjálfbærnivottaðar íbúðir við Heilsustofnun í Hveragerði. Íbúðirnar eru hugsaðar fyrir þau sem vilja njóta öryggis og þjónustu Heilsustofnunar og um leið einstakt tækifæri fyrir þau sem setja góða heilsu og vellíðan í öndvegi. Allur afrakstur af byggingu og sölu á íbúðum við Lindarbrún rennur til að bæta aðstöðu Heilsustofnunar.
Allar íbúðirnar eru sjálfbærnivottaðar með LEED vottunarkerfinu (Leadership in Energy and Environmental Design). Sjálfbært húsnæði er ekki eingöngu heilnæmt þar sem áhersla er m.a. lögð á orkunýtni, vatnsvernd, loftgæði innandyra og sjálfbær byggingarefni sem stuðlar að lægri rekstrarkostnaði, heldur er vistspor lágmarkað, bæði í framkvæmdum og yfir líftíma húsnæðisins.
Vottunarkerfið er leiðandi á alþjóðavísu og á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna. Kerfið byggir á aðferðafræði US Green Building Council og sjá innlendir og erlendir ráðgjafar um vottunarferlið í nánu samstarfi við hönnuði og verktaka. LEED vottunin byggir á kröfum sem tryggja heilsusamlegar, umhverfislega jákvæðar og rekstrarlega hagkvæmar vistvænar byggingar.
Hér má nálgast allar upplýsingar um íbúðirnar.

