Sérdeilis einfaldur og góður pastaréttur úr smiðju Yotam Ottolenghi. Harrisan er í lykilhlutverki við að gera þetta tómatapasta að bragðsprengju og svörtu ólífurnar og kapersið leggja sitt af mörkum. Hér má alveg svindla og nota venjulegar svartar ólífur og tómata úr einni dós. Magnið af harissa ræður því hversu bragðsterkt þetta verður. Notið það ferska krydd sem þið eigið og finnst gott. Á myndinni er mozzarella ostur sem var til í skápnum. Passlegt fyrir 4-6 en auðvelt að auka bæta við pasta og bjóða upp á hvítlauksbrauð eftir því sem gestum fjölgar.
Þú þarft:
- 1 msk ólífuolía
- 1 stór laukur
- 3 msk rósa harissa
- 400 g kirsuberjatómatar
- 55 g svartar Kalamata ólífur
- 20 g kapers
- 15 g steinselja
- 500 g pasta
- 120 g grísk jógúrt
Aðferð:
- Steikið þunnt skorinn laukinn í steikarpotti í um 8 mínútur. Bætið við tómötum sem hafa verið skornir í tvennt, harissa, ólífum, kapers og eins og hálfri teskeið af salti. Steikið í 3-4 mínútur. Bætið þá 200 ml af vatni og látið malla í 10 mínútur undir loki. Takið lokið af og sjóðið áfram í 4-5 mínútur þar til sósan verður þéttari. Hrærið þá helmingnum af fersku kryddjurtunum saman við.
- Sjóðið pastað í ríkulegu magni af vel söltu vatni, sigtið það og blandið þessu öllu saman. Berið fram með grískri jógúrt á kantinum fyrir þá sem það vilja og skreytið með afganginum af kryddjurtunum. Berið fram með góðu brauði.
Mynd: Pálmi Jónasson
