Árið 1952 gaf Náttúrulækningafélag Íslands út matreiðslubók sem seldist upp á skömmum tíma. Jónas Kristjánsson læknir ritaði formála þessarar bókar. „Margföld og löng lífsreynsla hefir sannað mér, svo að ekki er um að villast, að lifandi, náttúruleg fæða og hollir lifnaðarhættir byggja fyrir og lækna oft hina svokölluðu hrörnunarsjúkdóma, sem þrátt fyrir öll vísindi eru alltaf að færast í aukana,og er röng fæða höfuðorsökin“.
Í þessari matreiðslubók eru kynstrin öll af girnilegum grænmetisréttum sem eiga jafnvel við í dag og fyrir 62 árum. Í bókinni er einnig ágrip á næringarfræði og leiðbeiningar um mataræði og meðferð matvæla. Þessi gamla matreiðslubók NLFÍ er enn þann dag í dag að vekja athygli og fjallað var um hana á Eldhúsatlasinn.is þar sem höfundur hefur tekið sig til og prófað uppskriftir í bókinni. Hér er linkur þennan skemmtilega pistil og uppskriftina.

