Krækiberjabökur sem Solla á Gló deildi með lesendum Náttúrulækningafélagsins. Hér er miðað við fjögur 10-12 sentimetra bökuform með lausum botni en allt eins má nota eitt venjulegt bökuform í stað fjögurra lítilla. Hneturnar þurfa að liggja í bleyti í tvær klukkustundir.
Botn:
- 5 dl möndlur
- 1 dl kakóduft
- 2 dl döðlur, smátt saxaðar
- 1 dl apríkósur
- 1 tsk vanilla, duft eða dropar
- ⅛ tsk sjávarsalt
Aðferð:
- Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman. Deigið er tilbúið þegar það klístrast saman.
- Skiptið deiginu í fernt. Notið fjögur 10-12 cm bökuform með lausum botni. Þrýstið niður í formin og setjið inn í frysti á meðan verið er að búa til marsipanið.
- Athugið að hægt er að nota eitt 23-26 cm bökuform í staðin fyrir fjögur lítil.
Vanillufylling:
- 2 ¼ dl makadamíu eða kasjúhnetur, sem búnar eru að liggja í bleyti í 2 klst
- ¾ dl agavesýróp eða önnur sæta
- 2 msk kókosolía
- 1 tsk vanilla
- Salt af hnífsoddi
Aðferð:
- Allt sett í blandara eða matvinnsluvél og blandað saman þar til alveg silkimjúkt og kekklaust.
- Fyllingin sett yfir botninn.
Krækiberjatopping:
- 4 dl krækiber
- 2-3 msk hunang
Aðferð:
- Blandað saman og sett ofan á vanillufyllinguna.
Verði ykkur að góðu!
