Hollt og gott kartöflusalat úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Matstofu Jónasar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.
Kartöflusalat:
- 500 g kartöflusmælki
- 300 g radísur
- Handfylli radísuspírur
- 300 g strengjabaunir
- Handfylli saxað dill
- 3 msk skyr
- 3 msk sýrður rjómi
- 2 tsk grófkorna sinnep
- Safi úr ½ sítrónu
- 1 msk hlynsíróp
- Salt og pipar
Aðferð:
- Sjóðið smælkið í saltvatni og kælið.
- Hitið vatn að suðu og sjóðið baunirnar í 30 sekúndur og setjið svo í klakavatn. Skerið radísurnar í fernt.
- Blandið svo öllu saman og stráið svo radísuspírunum yfir.
Verði ykkur að góðu!
