Blómkálsbaka úr tilraunaeldhúsi Ottolenghi. Blómkál, sinnep og cheddar. Filodeig virðist ófáanlegt um þessar mundir svo ég notaði í staðinn einn pakka af smjördeigi.
Þú þarft:
- 1 Blómkál
- 1 msk karrýduft
- 3 msk olía
- 100 ósaltað smjör
- 75 g hveiti
- 675 ml mjólk
- 3 hvítlauksrif
- 2 msk sinnep
- 150 g cheddar
- 6 blöð filodeig
- Salt og pipar
- Steinselja
- Sítrónubörkur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180 gráður og setjið bökunarpappír í botn og hliðar á smelluformi.
- Skerið blómkálið í bita og bætið við karrý, salt, pipar og 2 matskeiðum af olíu. Setjið í ofnskúffu með bökunarpappír og bakið í 20 mínútur.
- Bræðið smjörið í potti og steikið með hveitinu í um 2 mínútur eða þar til kemur hnetuangan. Lækkið hitann og bætið mjólkinni smám saman við. Hrærið stöðugt og látið malla í um 7 mínútur. Takið af hitanum og bætið við hvítlauk, sinnepi osti og smá salti. Hrærið blómkálinu saman við.
- Setjið filódeigið í smelluformið og penslið blöðin jafnóðum með olíu eða notið smjördeig. Hellið blómkálssósunni út í og hálflokið með filodeiginu eða skreytið með smjördeigsafskurði. Penslið með bráðnu smjöri og bakið í um hálftíma. Losið þá hliðar smelluformsins frá og bakið áfram í 20-25 mínútur. Látið hvíla í 15 mínútur.
- Skreytið með steinselju og berki af einn sítrónu eða lime.
Myndir: Pálmi Jónasson

