Gómsæt berjabaka birt með góðfúsu leyfi Sollu sem jafnan er kennd við Gló. Gott að bera fram með þeyttum kókosrjóma.
Berjabaka:
- 100 g spelt
- 140 g haframjöl
- 80 g malaðar möndlur eða heslihnetur
- 90 g pálmasykur eða hunang
- 1 tsk kanill
- 1 tsk sjávarsalt
- 120 ml kókosolía
Fylling:
- 100 g bláberjasulta
- 120 g bláber
Aðferð:
- Setjið þurrefnin í skál og blandið.
- Bætið kókosolíunni út í og hnoðið þar til deigið klístrast saman.
- Notið 1/4 af deiginu í hjörtun. Setjið deigið milli tveggja bökunarpappírsblaða og rúllið deigið út með kökukefli. Notið piparkökumót til að skera út hjörtu eða falleg mynstur. Geymið hjörtun í kæli.
- Þrýstið restinni af deiginu í botninn á 23 cm kökuformi. Smyrjið sultu á botninn og hellið bláberjum yfir sultuna. Leggið hjörtun yfir kökuna.
- Bakið við 190 gráður í 20 – 25 mínútur. Leyfið kökunni að kólna aðeins.
Verði ykkur að góðu!
