Bananabaka með mangókremi frá Sollu á Gló. Sérlega falleg með fullt af ferskum ávöxtum og berjum.
Bökubotn:
- 5 dl kókosmjöl
- 4 dl makadamíuhnetur
- 2 dl apríkósur, smátt saxaðar
- 1 tsk vanilla
- ¼ tsk salt
- 1 msk kókosolía
Aðferð:
- Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman. Deigið er tilbúið þegar það klístrast saman.
- Þrýstið niður í form og setjið í frysti og látið stífna aðeins áður en fyllingin er sett yfir.
Bananafylling:
- 2 bananar í bitum
- 3 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klst
- 1 dl döðlumauk
- 1 msk sítrónusafi
- ½ dl kókosolía
Aðferð:
- Setjið bananana í blandara og maukið. Bætið öðrum hráefnum við að blandið mjúkt og kekkjalaust.
- Hellið fyllingunni yfir bökuskelina og jafnið út.
Millilag:
- 3 bananar
Aðferð:
- Skerið banana í sneiðar og raðið yfir bananafyllinguna.
Mangókrem:
- 2 dl kasjúhnetur, sem hafa legið í bleyti í 2 klst
- 1 dl kókosmjólk
- 1 dl chia gel
- 1 mangó, afhýtt og steinhreinsað (eða 2 dl frosið mangó)
- 15 cm stöngull sítrónugras, ystu grófu blöðin fjarlægð og stöngullinn smátt saxaður
- 4 msk hunang
- 2 msk kókosolía
- 2 msk sítrónusafi
- ¼ tsk salt
Aðferð:
- Hrærið allt kekkjalaust í blandara. Hellið ofan á bananasneiðarnar og dreifið úr kreminu.
- Skreytið með ferskum ávöxtum og berjum.
Verði ykkur að góðu!
