Þessar eplabollakökur eru mjúkar og safaríkar, með kanil, múskati og kardimommum. Þær eru bakaðar úr möluðum glúteinlausum höfrum og möndlumjöli, en grísk jógúrt gefur þeim mjúka áferð og litlir eplateningar koma skemmtilega á óvart í hverjum bita. Uppskriftin miðast við 12 stórar bollakökur.
Ef þið viljið hafa kökurnar glúteinlausar, eins og ég gerði núna, veljið hafraflögur og lyftiduft sem eru merkt glúteinlaus. Annars má alveg nota venjulegar hafraflögur og lyftiduft. Aðeins 2-3 msk. af hunangi eða hlynsírópi fara í deigið fyrir 12 kökur, svo þær geta verið góður kostur fyrir þá sem vilja draga úr viðbættum sykri. Rjómaostakrem með vanillu og sítrónuberki gera kökurnar enn betri. Sætunni í kremið má sleppa eða ekki.
Bollakökur:
- 2 stór egg
- 2-3 msk. hunang eða hlynsíróp
- 240 g hrein grísk jógúrt
- 45 g mjólk
- 50 g ólífuolía
- 2 tsk Vanilluþykkni eða duft þá bara 1 tsk
- 125 g glúteinlausar hafraflögur, alveg hægt að nota venjulegar
- 125 g möndlumjöl
- 2 tsk glúteinlaust lyftiduft, eða bara venjulegt
- ½ tsk. matarsódi
- ¾ tsk salt
- 2 tsk kanill
- 1 tsk múskat
- ¼ tsk kardimommuduft
- Fínt rifinn börkur af 1 sítrónu
- 2 epli, skorin í litla teninga — um 190 g
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C á blæstri. Setjið pappírsform í 12 bollakökuhólf. Malið hafraflögurnar fínt í matvinnsluvél eða blandara.
- Hrærið saman eggjum, hunangi eða hlynsírópi, jógúrt, mjólk, ólífuolíu, vanillu og sítrónuberki.
- Blandið möluðu haframjöli, möndlumjöli, lyftidufti, matarsóda, salti og kryddum saman í annarri skál. Hrærið saman við blautu hráefnin.
- Blandið eplateningunum saman við með sleikju.
- Skiptið deiginu í 12 bollakökuform og fyllið þau vel, því bollakökurnar lyfta sér fremur lítið við bakstur.
- Bakið í 22 mínútur. Látið bollakökurnar kólna í forminu áður en þær eru teknar úr og alveg áður en kremið er sett á.
Rjómaostakrem:
- 200 g hreinn rjómaostur
- 100 g þykk grísk jógúrt
- 1 tsk. vanilluþykkni
- ½ tsk. fínt rifinn sítrónubörkur
- 1–2 tsk. hunang eða hlynsíróp, ef vill
Aðferð:
- Hrærið rjómaostinn sléttan. Bætið jógúrt, vanillu og sítrónuberki saman við og hrærið stutt, rétt þar til kremið er samfellt. Smakkið til og bætið hunangi eða hlynsírópi við ef óskað er eftir meiri sætu.
- Kælið kremið áður en því er smurt eða sprautað á kaldar bollakökurnar. Geymið bollakökurnar í kæli eftir að kremið er komið á.
Verði ykkur að góðu!
Myndir: Halldór Steinsson


