Einfölduð uppskrift úr smiðju Ottolenghi. Uppskriftin passar vel fyrir sex en gott að hafa steiktar kartöflur eða brauð á kantinum.
Olían:
- 70 ml ólífuolía
- 8 ansjósuflök
- 2 msk tómatmauk
- 1 tsk chiliflögur
- 2 tsk marin kóríanderfræ
- 4 saxaðir hvítlauksgeirar
- 1 sítrónubörkur
- 2 tsk hunang
Aðferð:
- Látið olíu, ansjósur og tómatmauk í pott og látið malla á vægum hita í 5 mínútur. Bætið við chiliflögum og kóríanderfræjum og bætið við einni mínútu. Takið pottinn af hitanum.
- Bætið við hvítlauk, sítrónuberki og hunangi. Hrærið vel og leyfið þessu að kólna í 15 mínútur.
Fiskurinn:
- 1,2 kíló roðdreginn lax
- 2 sítrónur
- Salt og pipar
- 250 g kirsuberjatómatar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200 gráður og smyrjið eldfast fat eða notið bökunarpappír. Snyrtið og þerrið fiskinn vel.
- Skerið sítrónurnar í sneiðar og raðið í botninn á fatinu. Saltið fiskinn og piprið hann vel á báðum hliðum áður en hann fer ofan á sítrónurnar. Setjið hálfskorna tómata til hliðar í fatið og makið kryddolíunni yfir fiskinn.
- Bakið í 15-18 mínútur og leyfið fisknum að hvíla í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram.
Salsa:
- 80 g ólívur
- 40 g kapers
- 1 sítróna
- 2 msk ólívuolía
- Basilíka
Aðferð:
- Blandið öllu saman og setjið yfir fiskinn áður en hann er borinn fram.
Myndir: Kristín Pálmadóttir Thorlacius




