„Árangursrík endurhæfing margfaldar lífsgæði viðkomandi einstaklings og eykur einnig lífsgæði aðstandenda þeirra. Ávinningurinn er mikill,“ segir Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnar Náttúrulækningafélags Íslands. Árangur meðferðanna er mældur nákvæmlega og sýnir að líkamleg, andleg og félagsleg heilsa batnar verulega. Árangur af verkjameðferð er sérlega mikill og sýna viðurkennd verkjapróf fram á 42 prósent bætingu.
Heilsutengd lífsgæði dvalargesta eru mæld nákvæmlega við koma og svo aftur við útskrift af Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Mæld er depurð, þrek, heilsufar, fjárhagur, einbeiting, líðan, samskipti, svefn, kvíði, sjálfstjórn, líkamsheilsa, verkir og lífsgæði. Meðaltalsbæting er 16 prósent. Bætingin er mest hvað depurð, þrek og kvíða verðar eða nærri 40 prósent.
Um 1.350 gestir fá endurhæfingu á Heilsustofnun á hverju ári í samræmi við þjónustusamning við Sjúkratryggingar Íslands. Þórir segir allur þorri gesta segi það miklu skipta fyrir góðan árangur að vera í sólarhringsdvöl í Hveragerði í fjórar vikur. „Allir gestir koma samkvæmt tilvísun frá lækni og fá einstaklingsmiðaða og þverfaglega meðferð. Þar er mikið lagt upp úr hæfilegri hreyfingu, útivist í fallegri náttúru, ýmsum vatnsmeðferðum en ekki síður hvíld, núvitund og slökun – ásamt fræðslu og ráðgjöf. Þetta er þjónusta sem fólk í ýmsum fagstéttum heilbrigðisþjónustu veitir, en alls eru starfsmenn stofunnar 110 talsins.“



