Offita verður meðhöndluð eins og aðrir langvinnur sjúkdómar, forvarnir verða efldar og markmiðið er að offita meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra að aðgerðaráætluun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026-2030.
Markmið aðgerðaráætlunarinnar er að lýðheilsustefna stjórnvalda „taki mið af ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um notkun hagrænna hvata, bestu þekkingar og ráðleggingum embættis landlæknis um mataræði til að sporna gegn vaxandi tíðni offitu. Sérstök áhersla verði lögð á börn og ungmenni, m.a. í gegnum skólamáltíðir, nesti, heimilisfræðikennslu og lífsleikni.“
Gert er ráð fyrir að skipaður verði verði þverfaglegur starfshópur sem skoði „fýsileika þess að lækka álögur á grænmeti og ávexti, hækka álögur á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur, ásamt því að sporna við markaðssetningu óhollra matvæla gagnvart börnum. Einnig verði skoðað hvort merkja skuli sérstaklega gjörunnar og mjög óhollar matvörur.“
