Grænkáls- og spínatlasanja er þægilegur réttur sem auðvelt er að gera með góðum fyrirvara. Best finnst mér er að gera þetta deginum áður og hita það upp.
Lasanja
- 1 lítill blómkálshaus tekinn í fernt
- 2 bökunarkartöflur í bitum
- 1/2 sellerírót í bitum
- 300 gr blanda af grænkáli og spínati, saxað
- 5-6 msk næringarger
- ½ tsk hvítur pipar
- ½ tsk múskat
- ½ tsk negull
- 1 tsk laukduft
- 1 tsk maísmjöl
- 600 ml möndlu-, soja- eða haframjólk
- Lasanjaplötur að eigin vali
Aðferð:
- Setjið blómkál, kartöflur og sellerírót í stóran pott með vatni og matskeið af salti. Þegar þetta er orðið mjúkt er vatninu hellt af og grænmetið sett í blandara, ásamt mjólk, geri, múskati, pipar, negul, laukdufti og maísmjöli. Maukið þar til blandan er mjúk og fín.
Valhnetupestó:
- 300 g ristaðar valhnetur
- 1 krukka sólþurrkaðir tómatar með olíu
- 4 hvítlauksrif
- 1 tsk reykt paprika
- 1/2 tsk fennelduft
- 1/2 tsk óreganó
- Handfylli ferskt basil
Aðferð:
- Öll hráefni í valhnetupestó maukuð fínt í matvinnsluvél.
- Smyrjið svolitlu af spínatblöndu í botninn á eldföstu móti og setjið svo pastaplötur yfir. Bætið við öðru lagi af spínatblöndu ásamt öðru lagi af pasta. Setjið þá góðan skammt af pestói og svo tvær umferðir af bæði pasta og spínatblöndu. Endið á hinum helmingnum af pestóinu.
- Ofninn er hitaður í 180 gráður og rétturinn bakaður í um 35 mínútur. Þá er hann tekinn út úr ofninum og látin standa í 15 mínútur áður en hann er borin fram.
Mynd: Halldór Steinsson

Halldór Steinsson er yfirmatreiðslumaður hjá Heilsustofnun NLFÍ.
