Tortillur úr eldhúsi Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Hér er hollustan í fyrirrúmi og heimagert salsa og guacamole gera gott enn betra. Uppskriftin miðast við fjórar tortillur.
Þú þarft:
- 4 heilhveiti tortillur
- 300 g soðnar nýrnabaunir
- 1 saxaður laukur
- 4 saxaðir hvítlauksgeirar
- 1 tsk kanel
- 100 g gulrætur í teningum
- 100 g sellerírót í teningum
- 1 dós tómatar
- 1/2 bolli rifinn ostur
Salsa:
- 2 stórir tómatar eða 4 litlir
- 1 paprika
- 2 vorlaukar
- 1 grænt chili
- 1 lime, safinn
- Salt og pipar
Guacamole:
- 1 þroskað avocado
- 1 tómatur
- 3 vorlaukar
- 1 lime, safinn
- Salt og pipar
Aðferð:
- Brúnið grænmetið með kanil og bætið við tómötum og nýrnabaunum. Sjóðið í um 10 mínútur. Setjið fyllinguna í tortillurnar og bakið í ofni við 200 gráður í 10 mínútur.
- Saxið allt í salsað og blandið saman í skál.
- Stappið avocado og setjið í skál og bætið við fínt skornum tómat og vorlauk. Smakkið til með lime, salti og pipar.
- Berið tortillurnar fram með guacamole, salsa, hýðishrísgrjónum og góðu salati.
