Græna þruman á vel við stefnu Náttúrulækningafélagsins um grænan og heilbrigðan lífsstíl. Þessi drykkur er einungis 170 hitaeiningar. Drykkurinn er mjög trefjaríkur og stútfullur af vítamínum. Má þar nefna A-vítamín (204% af RDS), fólasín (56% af RDS) og C-vítamín (106% af RDS). Einnig er þessi drykkur mjög ríkur af af steinefnunum magnesíum og kalíum, en þau koma m.a. að vöðvasamdrætti og nýtast vel í líkamsrækt og útiveru.
Græna þruman:
- 100 g spínat
- 100 g mangó
- 20 g engifer
- ½ banani
- 50 ml kókosvatn
- 200 ml vatn
Aðferð:
- Allt sett saman í blandara.
Verði ykkur að góðu!
