Athyglisverðar staðreynir um heilsu, mannslíkamann og næringu
- Vegna mikillar tíðni offitu undanfarna áratugi mun sú kynslóð barna sem er að vaxa úr grasi núna lifa styttra en foreldrar þeirra.
- Stress er talið valda allt uppí 90% allra sjúkdóma.
- Að meðaltali þá lifa rétthendir um 9 árum lengur en örvhentir.
- Mannshjartað vegur um 300 gr. (konur: 250-300 gr. og karlar: 300-350 gr.).
- Af 206 beinum í líkamanum þá eru 106 af þeim í höndum og fótum.
- Þegar við hnerrum stoppar mestöll líkamsstarfssemi, meðal annars hjartað.
- Stærsti vefur líkamans eru vöðvarnir, sem eru um 45% af þyngd karlmanna og 36% kvenmanna.
- Lyktsterkur matur veldur því að maður verður frekar saddur.
- Hver einasti vöðvaþráður er þynnri en mannshár og getur haldið allt að 1000-faldri þyngd sinni.
- Það eru að minnsta kosti sex alþjóðleg svipbrigði. Þau eru: gleði, leiði, ótti, reiði, undrun og ógeð.
- Vélindað í manni er að meðaltali um 25 sentimetrar.
- Nýrun filtera um 1500 L. af blóði á dag.
- Lifrin hefur yfir 500 hlutverkum að gegna í mannslíkamanum.
- Á hverju ári slær mannshjartað að meðaltali um 35 milljón sinnum.
- 80% af mannsheilanum er vatn.
- Ef það væru ekki lokur í blóðrás okkar þá mundi allt blóð í líkamnum falla niður í fætur þegar við stæðum upp.
- Að meðaltali þá falla um 22 kg. af skinnfrumum af okkur á ævinni.
- Meltingarvegur mannsins er um 9 metrar.
- Þó það taki okkur bara nokkrar mínútur að neyta máltíðar þá tekur það líkamann um 24-72 klukkustundir að melta máltíða, þar til hún skilar sér sem úrgangur í klósettið.
- Magasýran getur leyst upp járn m.a. rakvélablöð.
- Höfuðið er um ¼ af líkamslengd við fæðingu en á fullorðinsárum er það ⅛ af lengdinni.
- Við 60 ára aldur munu 60% karla og 40% kvenna hrjóta.
- Konur lifa að meðaltali um 7 árum lengur en karlar.
- Konur hafa fleiri svitakirtla en karlar en svitakirtlar karla eru virkari en kvenna.
- Ef að þú berð hausnum í vegg í klukkustund ertu búinn að brenna 150 hitaeiningum.
- Hraðasti hnerri sem mælst hefur, náði 165 km/klst.
- Það er meiri sýkingarhætta af því að takast í hendur en að kyssast.
- Svefn er mikilvægari en næring ef við miðum við lífslíkur. Það er hægt að lifa lengur án næringar en hægt er að lifa án svefns.
- Spil og lestur er góður fyrir heilastarfssemina og getur komið í veg fyrir minnistap.
- Lengsti tími sem mælst hefur án þess að blikka augum er 30 klst. og 12 mínútur.
- Jarðarber, hindber og brómber eru raunverulega ekki ber. Hinsvegar ættu bananar, tómatar, grasker, vatnsmelóna og avokadó að teljast til berja.
- Chiafræ eru mjög vatnssækin og geta aukið þyngd sína 10-falt með því að leggja þau í bleyti.
- Árið 2011 voru seld um 29.9 milljón kg. af sýklalyfjum til kjöt- og alifuglaframleiðanda í Bandaríkum. Það er fjórum sinnum meira en selt var af sýklalyfjum til mannfólks í Bandaríkjunum.
- Að meðaltalli eru glútenfríar vörur 24% dýrari en sambærilegar vörur (USA).
- Elsta uppskrift af matvöru í heiminum er af bjór.
- Helmingar jarðarbúa mun neyta hrísgjórna í einhverri máltíð hvern einasta dag ársins.
- Það tekur að meðaltali um 6400 km fyrir banana að fara frá bananatrénu í munn neytanda.
- Kaffilykt er þekktasta lykt í heimi.
Heimildir:
www.crazyhealthfacts.com/interesting-fun-facts/physical-health/
www.leanitup.com/47-shocking-food-nutrition-facts-thatll-blow-rainbow-confetti-out-of-your-noggin/
Skrifað af Geir Gunnari Markússyni, ritstjori@nlfi.is