Uppskrift dagsins kemur úr uppskriftarbók Heilsustofnunar. Þetta er uppskrift af tapenade og er það frábært sem meðlæti á s.s. hrökkbrauð, snittubrauð eða pítsu.
1 krukka sólþurrkaðir tómatar með olíu
1 krukka blandaðar olífur
6 hvítlauksgeirar
1 poki steinselja
Allt sett í matvinnsluvél og maukað vel.
Verði ykkur að góðu. Þessi uppskrift klikkar ekki.