„Ég er alltaf rosalega ánægð en ég kom hingað á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði fyrst árið 2022 og var hér núna í fjórar vikur. Þarna er heildrænt prógramm, allt svo faglegt og maturinn stórkostlegur,“ segir Kristín Björg Þorsteinsdóttir í viðtali við Ragnheiði Linnet í Lifðu núna.
„Ég var í sjúkraþjálfun, fór í göngutúra, heit böð, sundleikfimi og jafnvægisæfingar sem eru mjög mikilvægar fyrir fólk á þessu æviskeiði. Svo voru fyrirlestrar daglega um andlega líðan og líkamann, markmiðasetningu, verki og hvernig sé gott að vinna úr þeim, svo var núvitund á morgnana, heitir bakstrar á kvöldin; ég get nánast talið endalaust upp hluti sem eru í boði. Það er líka lögð mikil áhersla á að maður hvíli sig og ofgeri sér ekki þarna. Félagsskapurinn er svo skemmtilegur, alltaf margt fólk til að tala við, aldrei illt umtal og andinn er einstaklega góður og hefur víst alltaf verið. Það er líka verið að koma fólki af stað í hreyfingu og annað sem það getur svo viðhaldið og haldið áfram með, það er hugsunin. Þetta er algjör paradís og ég mæli með þessu fyrir alla sem þurfa, og vilja hugsa um heilsuna, segir hún sannfærandi.“
Kristín Björg Þorsteinsdóttir hætti að vinna fyrir tveimur árum og segir að góð heilsa sé grundvöllur þess að njóta lífsins á þessu æviskeiði. Það sé aldrei of seint að byrja að hreyfa sig. „Ég er þeirrar skoðunar að þetta æviskeið geti verið það besta en það hangir á ýmsu, að maður sé við þokkalega heilsu og hafi það nokkuð gott fjárhagslega, geti notið hlutanna og lífsins, hreyft sig og farið í ferðalög innanlands og utan. Ég fór ekkert að hugsa um þetta æviskeið fyrr en hálfu til einu ári áður en ég hætti, þetta brestur allt í einu á og maður verður hálfundrandi á að vera kominn í þessa stöðu. Á sama tíma þakkar maður fyrir að fá að eldast. Auðvitað geta allir notið einhvers en góð heilsa dýpkar allt og gerir allt betra. Hún er forsenda þess að geta verið sjálfstæður, ferðast á eigin vegum, vera ekki bundin öðrum og vera með í lífinu.“
Mynd: Lifðu núna
