Portabello og ostrusveppir á smjörsteiktu súrdeigsbrauði með sýrðum rjóma. Uppskriftin hans Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði passar fyrir tvo.
Þú þarft:
- 250 g sveppir, blanda af portobello- og ostrusveppum
- 2 þykkar sneiðar af súrdeigsbrauði
- 1 msk olía
- 25 g smjör, auk smjörs til að steikja brauðið
- 1 lítill skalotlaukur, fínt saxaður
- 1 hvítlauksrif, létt marið
- 2–3 timjangreinar
- 1 tsk sérríedik eða annað edik, meira eftir smekk
- 3 msk sýrður rjómi, 36%
- Salt og nýmalaður svartur pipar
- Saxaður graslaukur eða steinselja
- 2 linsoðin egg, ef vill
Aðferð:
- Skerið seigasta hlutann neðan af ostrusveppunum og rífið þá í hæfilega bita. Skerið portobello-sveppina í sneiðar.
- Hitið olíuna á stórri pönnu við miðlungsháan hita. Setjið sveppina á pönnuna í einu lagi og steikið í fleiri umferðum ef þarf. Leyfið þeim að liggja kyrrum um stund áður en þeim er snúið. Ef vökvi safnast á pönnunni, látið hann gufa upp og steikið áfram þar til sveppirnir hafa tekið fallegan lit.
- Lækkið hitann og bætið smjöri, skalotlauk, hvítlauk og timjani á pönnuna. Steikið áfram í 2–3 mínútur, eða þar til laukurinn er mjúkur. Hrærið varlega og gætið þess að hvítlaukurinn brenni ekki.
- Bætið edikinu við og losið um það sem hefur brúnast á botni pönnunnar. Smakkið til með salti og pipar. Fjarlægið hvítlauksrifið og timjanstönglana.
- Smyrjið brauðsneiðarnar þunnt með smjöri á báðum hliðum. Steikið á annarri pönnu við miðlungshita þar til þær eru gullinbrúnar og stökkar.
- Smyrjið sýrðum rjóma á heitt brauðið og setjið sveppina ofan á. Dreypið dálitlu af smjörinu af pönnunni yfir og stráið graslauk eða steinselju yfir. Berið strax fram.
- Einnig er hægt að setja linsoðið egg ofan á hvora sneið og skera í rauðuna svo hún renni yfir sveppina.
Myndir: Halldór Steinsson

