Hollur og góður kvöldverður sem er hæfilegur fyrir 5-6. Heimagert falafel og kjúklingabaunir með sætum kartöflum og harissa. Borið fram með naan brauði og grískri jógúrt. Á myndinni er reyndar grískt pítubrauð úr súrdeigi frá Delpane sem ég átti í frysti. Lífið þarf ekki að vera flókið.
Kjúklingabaunir:
- 1 rauðlaukur
- 1 sæt kartafla
- 2 dósir kjúklingabaunir
- 4 msk harissa mauk
- 15-20 kirsuberja tómatar1 glas litlir tómatar
- 1 sítróna (safinn)
- Ferskar kryddjurtir
Aðferð:
- Steikið laukinn og kartöflurnar í um fjórum matskeiðum af olíu í 4-5 mínútur eða þar til mjúkt og farið að taka lit.
- Bætið kjúklingabaunum, harissa og tómötum á pönnunar og steikið áfram í um 3-4 mínútur.
- Bætið sítrónusafa, salti, pipar og kryddjurtum ofan á í lokin.
Falafel:
- 2 dósir kjúklingabaunir
- 5 vorlaukar
- 2 tsk cumin
- 2 sítrónur (hýðið)
- 3 msk hveiti
- 1 tsk salt
- 1 tsk pipar
Aðferð:
- Skolið kjúklingabaunir og maukið gróft með kartöflustappara
- Bætið hinum hráefnunum við og kreistið saman með höndunum.
- Mótið 16 buff og steikið í olíu á pönnu.
Mynd: Pálmi Jónasson
