Starfsfólk
Heilsustofnunar fór í árlega fjallagrasaferð á Hveravelli, mánudaginn
síðastliðinn. Ferðin heppnaðist einstaklega vel og söfuðust 50 pokar af
fjallagrösum.
Að tínslu lokinni fóru duglegu starfsmennirnir í heitu pottana á Hveravöllum.
Fjallagrösin sem voru tínd fara nú í hreinsun og þurrkun og verða svo notuð í fjallagrasate Heilsustofnunar, sem dvalargestir munu svo ylja líkama og sál á.
Fjallagrös hafa verið notuð árhundruðum saman á Íslandi og eru þau talin örva ónæmiskerfið, vinna gegn kvefi, styrkja maga og örva matarlyst.