Bakað blómkál með valhnetu gremolata

Halldór Steinsson yfirmatreiðslumaður á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði bjó til þessa girnilegu uppskrift af bökuðu blómkáli með gremolata. Þetta gremolata er frábært á brauð eða sem meðlæti með fiski.

Þú þarft:

  • 1 blómkál
  • 3 msk ólífuolía
  • 2 msk mjúkt smjör
  • 1 tsk salt
  • 1/2 tsk pipar
  • 1 tsk paprikuduft
  • 1-2 msk sítrónusafi

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180 gráður. Fjarlægið ytri laufin og skerið stilkinn þannig að blómkálið standi stöðugt.
  2. Blandið öllum öðrum hráefnum saman og smyrjið á blómkálið. Bakið í 40-60 mínútur eða þar til blómkálið er gullbrúnt að utan og mjúkt í gegn. Hnífur á að renna auðveldlega í gegnum blómkálið.

Gremolata:

  • 100 g valhnetur
  • Hnefafylli steinselja
  • Hnefafylli kóríander
  • 1-2 hvítlauksgeirar
  • 2 msk rauðvínsedik
  • 120 ml ólífuolía
  • 1 sítróna, börkur og safi
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Ristið eða bakið hneturnar og saxið krydd og hvítlauk.
  2. Öllu blandað saman og smakkað til með salti og pipar.
  3. Setjið gremolata á blómkálið áður en það er borið fram.

Mynd: Halldór Steinsson

Related posts

Plokkfiskur með sinnepi og osti

Grasaferð í Heiðmörk – Myndir

Grasaferð í blíðviðri í Heiðmörk