Parmesanfiskur & Döðlusalat

Saltur parmesan fer einstaklega vel með fiski og döðlusalat og jógúrtsósa býður upp á enn meiri hollustu. Mér finnst einfaldara að elda hann í ofni en hann er ekki síðri af pönnu. Hægt er að nota hvaða fisk sem er en hér var notuð langa. Passaði ágætlega fyrir sex.

Þú þarft:

  • 800 g langa
  • 1 bolli parmesan
  • 1 tsk hvítlaukssalt
  • 1 tsk pipar
  • Ólífuolía
  • Basilíka

Aðferð:

  1. Skerðu fiskinn í hæfilega bita og þerrið vel. Blandið olíunni og kryddinu saman í skál og veltið fisknum upp úr olíunni.
  2. Setjið fiskinn á bökunarpappír og stráið rifnum parmesan og basilíku yfir. Bakið við 230 gráður í 10-12 mínútur.

Döðlusalat:

  • Salat
  • Döðlur
  • Kirsuberjatómatar
  • Paprika
  • Grískur fetaostur
  • Kasjúhnetur

Aðferð:

  1. Ristið kasjúhneturnar. Setjið salatið í skál og hin hráefnin fallega yfir.

Jógúrtsósa:

  • Grísk jógúrt
  • Sítrónusafi
  • Mynta
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman en sósan verður bara betri ef hún fær að taka sig aðeins í ísskápnum.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Bakað blómkál með valhnetu gremolata

Plokkfiskur með sinnepi og osti

Grasaferð í Heiðmörk – Myndir