Hunangsristaðar gulrætur

Hunangsristaðar gulrætur eru góðar með nánast hverju sem er. Kjöt, fiskur, grænmeti eða einar og sér. Mislitar gulrætur gera diskinn enn fallegri.

Gulrætur:

  • 800 g gulrætur
  • Smjör og hunang

Aðferð:

  1. Sjóðið gulrætur aðeins og látið þær svo þorna aðeins í sigti. Þær eiga að vera „al dente“.
  2. Setjið þær í eldfast fat með smjöri og hunangi. Brúnið í ofni við 180-200 gráður þar til þær hafa tekið fallegan lit.

Related posts

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli

Grískt kartöflusalat