Grískt kartöflusalat

Grískt kartöflusalat með tómötum, ólífum, kapers, fetaosti og oreganó. Smellpassar með nánast hverju sem er.

Dressing:

  • 4 msk ólífuolía
  • 1 msk sinnep
  • 1 msk eplaedik
  • 1 tsk oreganó
  • Sítrónubörkur
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman.

Kartöflusalat:

  • 700 g kartöflur
  • 250 g kirsuberja tómatar
  • 1 rauðlaukur
  • 100 g ólífur
  • 15 g kapers
  • 100 g fetaostur
  • Ferskar kryddjurtir

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflurnar í saltvatni „al dente“. Skerið kartöflurnar í munnbita með eða án hýðis. Hellið dressingunni yfir og blandið saman.
  2. Blandið helmingnum af öðrum hráefnum við kartöflurnar og notið hinn helminginn til skreytingar. Skvetta af góðri ólífuolíu skemmir ekki.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Fræbrauð með trönuberjum

Döðlukaka með valhnetum

Hunangs- og sinnepsgljáð sellerírót með linsum, fetaosti og mandarínu