Fræbrauð með trönuberjum

Fræbrauð með trönuberjum sem er einfalt að baka. Fræin og hafraflögurnar gefa því gott bit og trönuberin örlitla sætu. Það er þétt undir tönn og gott með smjöri, osti eða öðru áleggi. Aðalatriðið er að gefa blöndunni tíma til að taka í sig vatnið, hnoða deigið vel saman í skálinni og leyfa brauðinu að kólna alveg áður en það er skorið. Það síðara getur reyndar verið erfiðasti hluti uppskriftarinnar þegar ilmurinn af nýbökuðu brauði fyllir eldhúsið! Uppskriftin miðar við eitt brauð.

Fræbrauð:

  • 70 g graskersfræ
  • 70 g sólblómafræ
  • 45 g sesamfræ
  • 50 g möluð hörfræ, hægt að mala þau í blandara eða í mortél
  • 30 g chiafræ
  • 20 g psyllium-hýði, fæst í bónus
  • 500 ml heitt vatn
  • 180 g haframjöl
  • 40 g þurrkuð trönuber
  • ½ tsk sjávarsalt
  • ½ tsk matarsódi
  • 1 msk eplaedik

Aðferð:

  1. Blandið graskersfræjum, sólblómafræjum, sesamfræjum, möluðum hörfræjum, chiafræjum og psyllium-hýði saman í stórri skál.
  2. Hellið heitu vatninu yfir og hrærið vandlega. Hyljið og látið standa í 30 mínútur, þar til blandan er þykk og klístruð.
  3. Bætið hafraflögum, trönuberjum, salti, matarsóda og ediki saman við. Deigið verður nokkuð þykkt og því er best að nota hendurnar og hnoða það vel saman í skálinni, þar til allt hefur blandast jafnt og deigið loðir saman.
  4. Klæðið um 23 × 13 cm brauðform með bökunarpappír. Setjið deigið í formið, þrýstið því þétt niður og sléttið yfirborðið.
  5. Hyljið með hreinu viskastykki og látið standa í aðrar 30 mínútur. Hitið ofninn á meðan í 180°C.
  6. Bakið í um 1 klukkustund, þar til brauðið er stíft viðkomu og skorpan gullin og stökk.
  7. Takið brauðið varlega úr forminu og látið kólna alveg á grind áður en það er skorið.

Verði ykkur að góðu!

Myndir: Halldór Steinsson


Related posts

Döðlukaka með valhnetum

Hunangs- og sinnepsgljáð sellerírót með linsum, fetaosti og mandarínu

Ofnbakað grasker með burrata og heslihnetusmjöri