Ofnbakað grasker með burrata, brúnuðu smjöri, heslihnetum og estragoni. Við bökunina verður graskerið mjúkt og sætt og fær fallegan lit á brúnirnar. Mjúkur osturinn, stökku hneturnar og ferskur sítrónubörkur gera svo hver sinn hlut. Þetta er léttur réttur fyrir tvo eða sem meðlæti fyrir fjóra. Undirbúningur er varla nema 15 mínútur og eldunin tekur 25 mínútur.
Ofnbakað grasker:
- 1 hokkaido-grasker, um 500–600 g, eða það grasker sem er til.
- 3 msk. ólífuolía
- 2 msk. hunang
- 1 tsk. chiliflögur
- 1 tsk. salt
- 35 g smjör
- 50 g heslihnetur, gróft saxaðar
- 1–2 burrata-ostar
- 2 msk. ferskt estragon, saxað
- Fínt rifinn börkur af 1 sítrónu
- Salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C með blæstri. Látið burrata ná stofuhita í um 20–30 mínútur fyrir framreiðslu svo áferðin verði mjúk og rjómakennd.
- Þvoið graskerið vel, skerið í tvennt og fjarlægið fræin. Hýðið má vera á. Skerið í báta og raðið í eldfast mót.
- Dreifið ólífuolíu, hunangi, chiliflögum og salti yfir. Veltið bátunum upp úr blöndunni og bakið í um 25 mínútur, þar til graskerið er meyrt og farið að taka lit.
- Bræðið smjörið í litlum potti við meðalhita. Látið freyða og brúnast þar til það ilmar af hnetum. Takið af hitanum og hrærið heslihnetunum saman við.
- Raðið graskerinu á fat. Rífið burrata yfir og dreypið heslihnetusmjörinu á. Stráið estragoni og sítrónuberki yfir og smakkið til með salti og pipar. Berið strax fram.
Verði ykkur að góðu!