Tælensk núðlusúpa

Tælensk núðlusúpa eða Khao soi gai. Venjan er að hafa kjúkling en það má nota hvaða prótein sem er. Tófú, baunir, ost eða jafnvel sveppi. Það er tímafrekt að djúpsteikja núðlurnar og laukinn en vel þess virði. Ef þið viljið góða núðlusúpu á stuttum tíma má sleppa djúksteikta hlutanum. Annars byrjið þið á djúpsteikingunni. Uppskriftin er miðuð við sex.

Núðlusúpa:

  • 750 g núðlur
  • 100 g curry paste
  • 3 hvítlauksrif
  • 1/2 tsk túrmerik
  • 750 ml vatn
  • 2-3 dósir kókosmjólk
  • 750 g tófú, kjúklingur eða annað prótein
  • 90 ml fish sauce
  • 1,5 msk sojasósa
  • 3 msk pálmasykur
  • 3 tsk límónusafi
  • 4 msk kóríander
  • 3 vorlaukar
  • 1 rautt chili

Aðferð:

  1. Sjóðið núðlurnar í samræmi við leiðbeiningar á pakka og leggið til hliðar.
  2. Eldið curry paste, hvítlauk og túrmerik í stutta stund í wokpönnu. Bætið við vatni og kókosmjólk í litlum skömmtum til að leysa upp karrýblönduna. Hitið að suðu, lækkið hitan og leyfið þessu að malla í 2-3 mínútur. Bætið við því próteini sem þið notið og sjóðið áfram í 5 mínútur.
  3. Bætið sósunum við ásamt pálmasykri og límónusafa.
  4. Kóríander, vorlaukur og chili fer ferskt yfir súpuna og eins djúpsteiktar núðlur og laukur.

Djúpsteiking:

  • 150 g núðlur
  • 2 laukar þunnt sneiddir
  • Olía til steikingar

Aðferð:

  1. Djúpsteikið núðlurnar og þerrið svo á eldhúspappír.
  2. Djúpsteikið laukinn í sömu olíu og þerrið á pappír.
  3. Notið ofan á núðlusúpuna.

Verði ykkur að góðu!

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli

Grískt kartöflusalat