Íslenskur þorskur og nýuppteknar kartöflur í tælenskum búningi. Uppskriftin gerir ráð fyrir gulu karrí en ég átti bara grænt og rautt svo ég notaði mildu grænu útgáfuna. Vitanlega má nota hvaða fisk sem er og nýta það sem er til í skápunum. Notaði hér basilíku og graslauk og stundum hef ég bætt við ristuðum hnetum. Auðvelt að breyta þessu í súpu með annarri dós af kókosmjólk. Uppskriftin miðast við fjóra.
Karrí:
- 500 g kartöflur
- 1 dós kókosmjólk
- 2 msk gult curry paste
- 60 ml fisksoð
- 2 msk fish sauce
- 1 msk límónusafi
- 1 msk pálmasykur
- 800 g þorskhnakkar
- 4 vorlaukar
- Væn lúka af ferskum kóríander
- 1 rautt skorið chili
Aðferð:
- Skerið kartöflurnar í helminga og sjóðið þar til þær eru „al dente“.
- Hitið helminginn af kókosmjólkinni þar til hún hefur helmingast og losað olíurnar. Bætið við karrí, kókosmjólk, soði, fiskisósu, límónusafa og pálmasykri og látið malla litla stund.
- Setjið skorinn þorsk og kartöflur í karrísósuna og leyfið að malla í um þrjár mínútur.
- Berið fram með skornum vorlauk, chili og kóríander.
Verði ykkur að góðu!
Myndir: Pálmi Jónasson